Farinn í fríííí

Já sumarfríið kemur snemma í ár. Er farinn með umtalsverðan hluta af fjölskyldunni í frí til Flórída næstu þrjár vikurnar. Fyrst í skemmtigarðana á Orlandó svæðinu og síðan niður að ströndinni Mexíkóflóamegin. Stefnir í stanslausa blíðu og einstaka þrumstorma og regnskúri. Allir fullir tilhlökkunar og kannski náum við að blogga einhverjar ferðasögur og senda nokkur póstkort frá Ameríku. Ef ekki, þá teysti ég því að þið hafið það öll gott á Íslandi ... já og gleðilega þjóðhátíð!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vildi bara senda ykkur kærar kveðjur í sumarfríið - vona að dagarnir í Orlando hafi ekki gengið frá ykkur foreldrunum og að kraftur sé eftir í bátasiglingar, veiði og sólböð.

Njótið lífins og hafið það gott - hér er 9 stiga hiti og gengur á með súld - bara þetta sama gamla... endilega blogga af ferðalaginu ef þið getið.

Ásdís sys

Ásdís Ingþórsdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.