Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Til hamingju Margrét !

... með þá ákvörðun að fara í varaformann Frjálslyndra. Það er býsna líklegt að hún muni hljóta kosningu sem varaformaður, en um leið stillir hún sér upp sem næsti formaður flokksins. Hún hefði getað tekið formannsslaginn og kannski unnið en kannski líka tapað. Það hefði líklega skaðað flokkinn - að minnsta kosti líklegt að flokksmenn líti svo á. Því munu þeir launa henni með því að kjósa hana varaformann. Ég held það hafi líka runnið upp fyrir mörgum (tja eða fáum) flokksmönnum að hún er miklu trúverðugri málsvari flokksins en sumir af þeim pappírum sem flokkurinn hefur verið að tefla fram. Þannig að þetta eru ekki endilega góðar fréttir fyrir pólitíska andstæðinga Frjálslynda flokksins - Margrét er þess háttar kona að flestum er vel við hana, hvar í flokki sem þeir standa og hefur eflaust kjörfylgi umfram það sem flokkurinn hefur sem heild. Þannig verður flokkurinn á efa álitlegri kostur fyrir kjósendur með hana í forystu í Reykjavík og sem væntanlegan arftaka flokksins en aðra valkosti sem birst hafa inn flokksins. Kannski er þó best að bíða með hamingjuóskir framyfir flokksfund ... maður veit aldrei hverju flokkar taka uppá.
mbl.is Margrét Sverrisdóttir sækist eftir sæti varaformanns Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ágúst !

Það er full ástæða til að óska nafna mínum til hamingju með nýtt starf og óska honum velfarnaðar í starfi sínu sem rektor á Bifröst. Þá rætist sá draumur hans að fá að stýra sérstökum viðskiptaskóla - en hann var eindreginn talsmaður þess að skipta Háskóla Íslands upp í nokkra skóla. Er reyndar líklegt að sú verið raunin innan nokkurra ára. Er ekki að efa að hann mun taka duglega til hendinni og skólinn dafna áfram undir hans forystu.

Hjá Háskóla Íslands geta menn verið stoltir yfir því trausti sem aðrir skólar sýna skólanum að sækja til hans rektorar sína. Þess er skemmst að minnast að Svafa Grönfeldt er að taka við sem rektor Háskólans í Reykjavík, en hún var einnig búin að vera starfsmaður Háskóla Íslands, ásamt fleiri störfum, til margra ára.  Hún sagði hins vegar upp starfi sínu um leið og það lá fyrir, enda kannski ekki góð latína að vera rektor í einum skóla og í leyfi frá þeim næsta.

Ég er annars að hugsa um hvort ég eigi ekki að halda úti bloggi sem byrja öll á "Til hamingju ..." þetta er nefnilega þriðja skiptið sem ég nota þennan tiltil. Það eru næg tilefni til að óska mönnum og málefnum til hamingju. Þannig hefði í dag verið hægt að óska Ríkisendurskoðun til hamingju með að ganga hratt og vel til verka í að kíkja á Byrgisbókhaldið, sérstökum ríkissaksóknara fyrir litskrúðugt og skemmtilegt málfar í sóknarræðu sinni fyrir Hæstarétti í dag, krónunni fyrir að hafa styrkt sig í sessi og kvikmyndinni Börn sem var að fá útnefningu í dag fyrir að vera í hópi bestu mynda ársins 2006 að mati evrópskra kvimyndaspekinga. Bara nokkuð góður vetrardagur á Íslandi.


mbl.is Ágúst Einarsson settur í embætti rektors á Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskóli Íslands stefnir hátt

Talsverð umfjöllun hefur orðið um samning menntamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands í fjölmiðum og á vefsíðum landsins. Fjallað var um menntamálin almennt í pólitíkin á Stöð 2, föstudagskvöldið 12. janúar og sérstaklega um samning Háskóla Íslands og menntamálaráðuneytisins. Jafnframt var fjallað um möguleika skólans á að komast í fremstu röð í fréttum Stöðvar 2. Í báðum þáttum var vitnað í blogghöfund og því rétt að vekja athygli á þessum þáttum og ekki síður ítarlegra viðtali sem birtist á visir.is undir fyrirsögninni Háskólinn stefnir hátt.

Vitnað hefur verið í viðbrögð starfsmanna bæði Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík sem hafa lýst vonbriðgum með þennan samning. Þau viðbrögð eru um margt skiljanleg, en þó er vert að halda til haga að fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri stafar af því að hann fór um skeið fram úr fjárheimildum. Ég get verið sammála því að fjárveitingar til kennslu voru of litlar - bæði til Háskólans á Akureyri og til Háskóla Íslands - en sá síðarnefndi fór samt ekki framúr. Með Háskólann í Reykjavík hefur ítrekað verið á það bent að hann fái í senn sömu fjárveitingu per nemenda og ríkisháskólarnir en innheimti um leið skólagjöld.

Þessu til viðbótar má svo benda á að Háskóli Íslands hefur dregið vagninn í íslensku háskólastarfi og þeir samningar sem við hann eru gerðir um kennslu og rannsóknir hafa verið viðmið hinna háskólanna. Því er ekki ólíklegt að þessi samningur muni til lengri tíma skila sé í auknum fjárveitingum til hinna háskólanna einnig. Á síðustu árum hefur fjármagn til samkeppnissjóða verið aukið og mun sú aukning vonandi halda áfram á næstu árum. Við sem erum bjartsýn á framtíðina getum því litið svo á að framundan sé áframhaldandi uppbygging og vöxtur í ærði menntun, rannsóknum og nýsköpun - sem ég trúi að muni skipta mestu um framtíð okkar á þessari þekkingaröld.


Til hamingju íþróttamenn!

Sama fyrirsögn og síðasta blogg færsla - nei, ég er ekki svona hugmyndasnauður, heldur er annað tilefni til hamingjuóska. Það er bara gaman að geta verið jákæður marga daga í röð.

Ég óska öllum styrkþegum ÍSÍ til hamingju og við treystum því að þetta aðstoði okkar afreksfólk og auki líkurnar á að við eigum góða fulltrúa á Ólympíuleikunum í Peking eftir hálft annað ár.

Sérstaklega óska ég ungum og efnilegum félögum í Íþróttafélagi fatlaðra til hamingju : Embla mín, Eyþór og Sonja - hjartanlega til hamingju. Þið eruð vel að þessu komin og þetta verður ykkur örugglega hvatning til að gera ykkar ítrasta og ná því markmiði að koma á Ólympíuleika fatlaðra árið 2008. Smile


mbl.is Örn Arnarson sundmaður fékk A-styrk á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Háskóli Íslands !

Það er full ástæða til að óska menntamálaráðherra og háskólarektor til hamingju og þeim hópi fólks sem hefur staðið að þessari samningagerð. Með samningnum eru stjórnvöld að leggja fram fé sem gerir skólanum mögulegt að koma betur til mót við þær væntingar sem samfélagið hefur til Háskóla Íslands.

Það er sérstök ástæða til að óska Kristínu Ingólfsdóttur, háskólarektor, til hamingju með þennan samning. Hún hratt af stað stefnumótunarvinnu innan Háskólans sem hefur skilað þeim árangri að nú liggur fyrir skýr markmiðssetning í einstökum og mælanlegum þátttum. Þessi vinna var unnin í samræðu við stjórnmálaumhverfið þannig að nú er um það sátt að hátt skuli stefnt á næstu árum. Um leið og sú sátt var til staðar, var einnig til staðar skilningur á því að til að ná árangri þurfi að leggja í nauðsynlega fjárfestingu til að ná markmiðunum.

Nú er veigamiklu markmiði náð, að tryggja fjárhagslegt rekstrarumhverfi skólans til næstu fimm ára. Framundan er mikil vinna og uppbyggingu hjá háskólasamfélaginu. Til hamingju með daginn háskólafólk.


mbl.is Nýr samningur skapar forsendur fyrir að HÍ komist í fremstu röð í heiminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matarverð er málið - kannski kosningamálið ?

Það er aldeilis að lítil frétt á mbl.is sem var ættuð frá dönsku Hagstofunni hefur undið uppá sig. Morgunblaðið skrifar leiðara um málið í dag og helstu stjórnmálaleiðtogar eru spurðir álits. Hagstofa Íslands hefur svarað kalli mínu og veitir greinargóðar upplýsingar í Morgunblaðinu í dag - auðvitað á stofnunin að vera virk í svona umræðu.

Morgunblaðið er á því að matarverðið eigi að vera kosningamál í ár og bendir kjósendum á að nú líði senn að því að þeir fái tækifæri til "að minna stjórmálamenn á að neytendur, skattgreiðendur og kjósendur eru sama fólkið." hummm hvern á ég þá að kjósa spyr maður kannski sjálfan sig, og Mogginn er hjálpsamur að vanda og ræðir við stjórnmálaleiðtogana.

Byrjum á framsóknarmönnunum tveimur: "Þarna er um hlutfallslegan samanburð á algerlega ósambærilegum löndum að ræða" segir formaður Framsóknarflokksins, sem getur ekki hætt að kenna og segja okkur hvað er rétt og rangt. Og hinn framsóknarmaðurinn er einnig á þeirri skoðun að þetta sé hálfgerður dónaskapur í Mogganum að vera að fjalla um málið og til óþurftar hjá evrópskum hagstofum að stunda þennan óraunhæfa samanburð: ""Ég er þeirrar skoðunar að allar viðmiðanir við meðalverð [í Evrópuríkjunum] séu óraunhæfar, enda sjáum við t.d. að Danir eru langt fyrir ofan það" sagði Steingrímur J. Sigfússon." Sem sagt við eigum bara að sætta okkur við þetta. Ekki hugnast mér það.

Sjálfstæðisráðherrann notar tækifærið til að minna kaupmenn landsins á að standa nú með flokknum sínum í stóru barbabrellunni korteri fyrir kosningar: "Þessi niðurstaða undirstrikar hversu mikilvægt það er að fyrirætlanir okkar um lækkun matvælaverð ... takist vel til segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra." Ég vona að það gangi vel hjá þeim og matarreikningur minn og allra hinna lækki raunverulega - en afhverju var þetta ekki hægt fyrr en tveimur mánuðum og nokkrum dögum fyrir kosningar. Þið afsakið þótt ég sé svolítið tortrygginn.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn Ingibjörg Sólrún - sem fór mikinn í minkapels í matvörubúðum í ljósvakamiðlum í gær - leggur áherslu á að lækka tollana: "Það er ekki hægt að líta fram hjá því, að innflutningstollar eru mjög stór þáttur í okkar haá matarverði." Það er skemmtileg ekki-tilviljun að Mogginn vekji athygli á þessari tilvitnun í hana, því þarna er blaðið sammála: "Það er engin tilviljun að hæsta matvælaverðið í Evrópu [sé] á Íslandi, í Noregi og Sviss, sem eru þau lönd sem leggja mestar hömlur á viðskipti með landbúnaðarvörur. Það mun lækka verð að draga úr þeim hömlum."

Humm er Mogginn nokkuð í framboði? Ég sé ekki betur og gæti bara sem best hugsað mér að kjósa Styrmi sem er farinn að berjast fyrir lækkun matarverðs og alls þess aukakostnaðar sem á okkur auma landsmenn leggst vegna þess að við erum að burðast með okkar eigin gjaldmiðil. En meira um evruna síðar.


Að þekkja sína þjóðarsál

Enn og aftur er maður minntur á mikilvægi þess að þekkja sína þjóðarsál þegar maður les forsíðufrétt Blaðsins í dag. Það hefur yfirleitt haft þveröfug áhrif á Íslendinga ef þeim er hótað einhverju. Alcan hótar því að loka Álverinu í Straumsvík ef Hafnfirðingar leyfa ekki stækkun Álversins. Ég trúi að þetta hafi þveröfug áhrif á Hafnfirðinga og okkur hin líka.

Sem taktík er þetta óskynsamlegt ... fyrir nú utan það að vera næstum alveg örugglega ósatt. Rekstur Álversins hefur aldrei gengið eins vel og síðustu tvö árin, þökk sé háu heimsmarkaðsverði á áli. En lækki heimsmarkaðsverðið þá lækkar líka raforkuverðið - svo Alcan er gulltryggt með ódýrasta raforkuverð sem það á kost á. Að þeir hætti rekstri á hagkvæmri einingu þar sem raforkuverð er lægst af öllum þeirra einingum. Trúlegt GetLost


Hvar er Hagstofa Íslands þegar kemur að fréttaflutningi?

Það er engin frétt að hér sé dýrast að búa af öllum Evrópuríkjum. Þetta vitum við og þess vegna geta menn meira að segja farið í innkaupaferðir til Danmerkur - sem þó er Evrópusambandsríkja dýrast. Það sem mér finnst athyglisvert við þessa frétt er að hún kemur frá dönsku hagstofunni.  Hvar er Hagstofa Íslands þegar kemur að svona fréttaflutningi? Finnst þeim það ekki áhugavert að hér sé mesta dýrtíð allra okkar samanburðarlanda? Eða er það ekki í þeirra verkahring að senda frá sér tölfræðilegan samanburð af þessum toga sem gefur auðvitað tilefni til hápólitískra ályktana. Því tölurnar tala sínu máli - og hér er málið skýrt: Það er dýrt að búa á Íslandi. Stóra spurningin er auðvitað afhverju?

 

PS ... ég sé að Mogginn er að standa sig og setur þessa frétt á forsíðu (daginn eftir að þetta birtist á netinu). Auðvitað er það rétt fréttamat hjá Mogganum að verðlagið hér sé forsíðuefni. Nú legg ég til að Mogginn birti forsíðufrétt á hverjum degi fram að kosningum til að minna okkur á að við búum við mestu dýrtíð á Íslandi. Hann gæti svo birt daglega nýjar tölur, t.d. í tengslum við lækkun á virðisaukaskatti og verið með spennandi vangaveltur um hverju sé nú um að kenna.


mbl.is Verð á vörum og þjónustu 46% hærra hér að jafnaði en í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýársmót fatlaðra barna og unglinga í sundi

Verðlaunahafar 2007Síðustu árin hefur fyrsti sunnudagur á nýju ári alltaf verið helgaður Nýársmóti fatlaðra barna og unglinga í sundi, sem nú var haldið í 24. sinn. Þetta var fyrsta sundmótið sem Emblan tók þátt í fyrir mörgum árum og nú tók hún þátt í síðasta sinn því eftir ár verður hún komin á átjánda ár og þá orðin of gömul. Hún stóð sig vel í dag og þótt engin Íslandsmet hafi fallið (maður er eiginlega farinn að vænta þess að þau falli eftir árangurinn á síðasta móti, þegar met féll í hverju sundi) þá var þetta fyrsta mótið þar sem hún stingur sér í bæði skriðsundi og bringu. Það mun alveg örugglega skila sér í betri tíma þegar kemur fram á árið.

Fréttastofa sjónvarpsins gerði mótinu góð skil í kvöldfréttum - fín mynd af minni! Helgarsportið bætti um betur og þar er skemmtileg viðtal við Sonju Sigurðardóttur sem stóð sig afar vel í dag og setti tvö Íslandsmet! Þetta verður spennandi ár hjá þeim þremur í ÍFR, vinkonunum, Emblu og Sonju og Eyþóri. Megin markmið ársins hjá þeim öllum er að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008, en þau eiga nokkuð góða möguleika á því eftir að Kristín Rós tryggði Íslandi þátttökurétt með frammistöðu sinni á heimsmeistaramótinu í S-Afríku í desember á síðasta ári. Þetta verður ekki auðvelt hjá þeim, en þau hafa sýnt mikla þrautsegju og mikinn keppnisvilja og ég hef mikla trú á að þau verði okkar tríó í Peking ... og er byrjaður að safna fyrir farinu. Smile 

Það var ekki síður gaman að fylgjast með nýgræðingunum en þeim sem voru að berjast við Íslandsmetin. Það er mikil og merkileg upplifun fyrir alla að taka þátt í alvöru sundmóti í fyrsta skipti með tímatöku, dómurum og hvatningarhrópum og fá svo viðurkenningu frá borgarstjóranum í Reykjavík í lokin. Þetta mót er til mikils sóma fyrir Íþróttasamband fatlaðra.


Því svona viljum við hafa það!

Skaupið var endursýnt á þrettándanum. Það var ekki síðra við endurskoðun - og ég tek bara undir með lokalaginu þar sem hópurinn syngur: "Því svona viljum við hafa það". LoL 

Vek um leið athygli á palladómi mínum um skaupið - smellið hér - væntanlega fyrsta palladóminum af mörgum um íslenskt menningarefni!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.