Framsókn áfram - ekkert stopp?

Þeir hafa þótt standa sig vel, áróðursmeistarar Framsóknarflokksins í síðustu kosningum bæði til landsstjórnar og sveitastjórna. Hvað eftir annað hefur flokknum tekist að ná viðunandi niðurstöðu í kosningum, eftir hörmulegt gengi í skoðanakönnunum og þar hefur áróðurinn hjálpað. En ég hef efasemdir um kosningaslagorðið þeirra: Árangur áfram - ekkert stopp!  Ekkert er nefnilega verra en slagorð sem snýst í hönunum á manni. Menn geta skeytt framan við þetta nær hverju sem þeir eru á móti:

Álver áfram - ekkert stopp!
Stóriðja áfram - ekkert stopp!
Ójöfnuð áfram - ekkert stopp!
Kvótakerfið áfram - ekkert stopp!
Einkavinavæðing áfram - ekkert stopp!
og svo auðvitað Framsókn áfram - ekkert stopp!

Nema að menn vilji snúa því við og segja:

Framsókn í frí - segjum stopp!

.... ég segi bara svona.

E.S. Ég má til með að bæta við þessa færslu ... því það er þegar komin á netið vel útfærður útúrsnúningur á þessu slagorði. Endilega skoðið þetta sjálf.


mbl.is Framsóknarmenn boða áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 

Rakst á málefnalegt innlegg frá Sigurð J. um stopp-stefnuna hér.

Bjarni M. (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: 365

Það vill nú bara svo til að þú ert að tala um ankeri íslenskra þjóðmála, eina íslenska þjóðartáknið sem hefur verið klölfestan í íslenskum stjórnmálum eins og elstu menn muna.  Bara það eitt að vera orðin svona gamall og jafnframt ungur segir sína sögu.  Ef flokksins hefði ekki notið við á ögurstundum þá væri að ég held önnur og meiri vitleysa í gangi heldur en nú er.  Ég segi nú eins og skáldið, Guð gefi oss fleiri Framsóknarflokka!!

365, 10.4.2007 kl. 14:54

3 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Talandi um auglýsingaherferðina hjá exbé, hér er nokkuð góð útgáfa af henni:

Guðmundur Auðunsson, 10.4.2007 kl. 16:47

4 Smámynd: Ágúst Hjörtur

Þetta er ansi flott útgáfa og eflaust verður einhver fljótur að finna þennan námsmann í Danmörku!  Það hlaut að vera að fleiri kæmu auga á hversu voðalega tvíbent þetta slagorð er .... maður getur ekki annað en vorkennt þeim svolítið og beðið spenntur eftir Spaugstofunni á laugardaginn.

Ágúst Hjörtur , 10.4.2007 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband