10% árangur

Það er til gamall slagari þar sem námsmaðurinn syngur: "Fallinn, með fjóra komma níu".  Kemur upp í hugann þegar hlýtt er á fréttaflutning af niðurstöðu héraðsdóms. Þar  kemur fram sú merkilega hliðarfrétt að ríkið sé dæmt til að greiða 90% af kostnaði verjenda. Sem þýðir þá að dómararnir hafa álitið að 10% af málatilbúnaði hafi átt við nægileg rök að styðjast til að vera réttlætanlegur og þá að 90% hafi verið gönuhlaup í ákæruvaldinu.

Ég sé fyrir mér svalir í borginn (eins og í Boston Legal), þar sem Sigurður Tómas situr í kvöld með wiskey glas í hönd og raular nýjan texta við þennan þekkta slagara:

Fallin, með aðeins einn af tíu
eitt skelfilega skiptið enn.

... ég segi bara svona. Hitt veit ég, að ef ég næði bara 10% árangri í vinnunni minni - myndi ég örugglega missa hana.


mbl.is Dómarnir vissulega vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrirgefðu, en hvað í dauðanum áttu við? Er þetta virkilega skoðun fólks, að dómsmál séu einhversskonar keppni? Ég a.m.k. er ekki í lögfræðinámi til að svala keppnisskapinu eða neitt í þá veru, ég vonast einfaldlega til að geta sinnt þessu starfi og fengið laun fyrir.

Dómsmál snúast um að komast að réttri niðurstöðu, sakfella menn fyrir það sem þeir eru sekir fyrir og ekkert annað og ég vona svo sannarlega að það hafi verið gert í þessu tilviki. Í þeim skilningi skilaði þessi málarekstur 100% árangri eins og (í prinsippinu a.m.k.) er niðurstaðan í öllum málum sem fara fyrir dómstóla.

Ef staðreyndin er sú að þeir liðir málsins sem vísað var frá hafi frá upphafi verið fráleitir þá er auðvitað ömurlegt að ákært hafi verið fyrir þá, mér dettur ekki í hug að koma til varnar ákæruvaldinu í þessu máli sem ég (og væntanlega flestir) skil hvorki haus né sporð í.

Það er bara þessi árangurspæling sem fer í taugarnar á mér... ég taldi mig vera að læra til að geta stundað vinnu í framtíðinni, ekki æfa fyrir íþróttagrein. Ef við treystum dómurum til að taka réttar ákvarðanir þá fór málið nákvæmlega á þann eina veg sem sem það átti að fara. Meiri eða minni "árangur" hefði verið röng niðurstaða.

Páll Jónsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 01:21

2 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Gott hjá þér Páll Jónsson! Ég hef nákvæmlega sömu skoðun og þú á því að Dómsmál eigi að snúast um að komast að réttri niðurstöðu. Ég hef verið undanfarinn áratug að koma sannleikanum í Geirfinnsmálinu sem dæmt var í Hæstarétti þann 22. 02. 1980 án allra sannana án alls árangurs.... Sannleikurinn í alvarlegum sakamálum hérna á landi er ekki að mér virðist vera efst á baugi hverju sinni hjá stjórnvöldum.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 4.5.2007 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband