Til hamingju landsliðspiltar !
Mánudagur, 22. janúar 2007
Það koma engir aðrir til greina fyrir hamingjuóskir dagsins en landsliðsdrengirnir okkar. Þótt ég teljist til antisportista, þá fylgdist ég með þessum leik og þetta var hreint ótrúlegt. Varð nett stressaður þegar þeir mistu forystuna niður um þrjú mörk í seinni hálfleik en þeir voru fljótir að vinna það upp aftur. Eftir svona svakalega frammistöðu hlýtur stefnan að vera tekin á heimsmeistaratitilinn: Það er ekkert landslið sem Ísland getur ekki unnið þegar allt gengur upp og menn mæta með þann baráttuanda sem skein úr hverju íslensku andliti í kvöld.
Íslendingar gjörsigruðu Evrópumeistaralið Frakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2007 kl. 13:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.